Já hann er rotinn skunkur sem heitir Kalli... ekki á þakinu samt
eða þó...??? aldrei að vita... en já um daginn greindist hann með
lungnaþembu... hefur þó aldrei reykt. Vildi bara deila þessu með
ykkur...
Ég vil hvetja alla til að fara inn á www.blog.central.is/hakasjaka og setja þar
inn undirskrift sína í comment á efstu greinina... ætlunin er sú að
fá Stebba Guðna til að fara í áheyrnaprufur á Gauk á stöng fyrir
nýja Rock Star sjónvarpsþáttinn, en þær fara fram þann 5. apríl
næstkomandi. 50 undirskriftir verða að nást svo hann fari... þetta
er eitthvað sem að allir vilja sjá svo drífið ykkur inn á hakasjaka
og skrifið undir... NÚNA!!!!
Annars er nú ekki mikið að frétta af kallinum... sama rútínan
dag eftir dag og geysilegur skólaleiði farinn að gera vart við
sig.... en vá nenni samt ekki að fara klikka eitthvað á 4. ári...
það væri náttlega fatal....
já núna man ég.....
ER KOMINN Í
FRAMBOÐ!!!!!!! Já vinur þannig er nú það... sit í 11. sæti
L-listans fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar sem fara fram í
maí.... er bara nokkuð spenntur fyrir þessu og held að þetta gætiu
alveg verið eitthvað fyrir mig... við ætlum okkur stóra hluti...
þ.e.a.s. 3 menn inn og að komast í meirihluta í bæjarstjórn... en
allavega verð án efa með mikinn pólitískan áróður á næstunni... vil
síðan bara minna á www.l-listinn.is sem verður opnuð innan
skamms og einnig www.blog.central.is/l-listinn sem
einnig verður tekin í notkun innan fárra daga... en þar verður
sjóðheit umræða í gangi um bæjarmálin og geta menn sagt skoðanir
sínar þar...
Framboðslisti L-listans, lista fólksins, er þannig skipaður:
1 Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi og blikksmiður
2 Anna Halla Emilsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri
3 Víðir Benediktsson, skipstjóri
4 Nói Björnsson, skrifstofustjóri
5 Halla Björk Reynisdóttir, flugumferðarstjóri
6 Tryggvi Gunnarsson, sölumaður
7 Sigurveig Bergsteinsdóttir, matráður
8 Þóroddur Hjaltalín, aðstoðarverslunarstjóri
9 Bylgja Jóhannesdóttir, nemi í VMA
10 Þórey Ketilsdóttir, sérkennari
11 Ragnar Snær Njálsson, menntaskólanemi
12
Guðrún Inga Hannesdóttir, grunnskólakennari
13 Helgi Snæbjarnarson, pípulagningamaður
14 Hulda Stefánsdóttir, bókari
15 Inga Dís Sigurðardóttir, háskólanemi
16 Benedikt Valtýsson, vélvirki
17 Jón Ágúst Aðalsteinsson, húsasmíðameistari
18 Þorsteinn J. Haraldsson, tækjamaður
19 Ása Maren Gunnarsdóttir, sjúkraliði
20 Brynjar Már Magnússon, starfandi matreiðslumaður
21 Jóhann Steinar Jónsson, matreiðslumeistari
22 Halldór Árnason, skósmiður.
RAGGA Í
BÆJARSTJÓRN!!!!!!!!!!!!!! ahahahaha

Drullist til að kvitta
skítseyði...
# 19